en því kærari sé honum Lýðveldisdagurinn sautjándi Júní og er það mér að meinalausu. Birni finnst það skrítið að mönnum skuli detta það í hug að gera sér daga mun af og til fyrsta des, en það er nú kannski ekkert skrítið, þar sem almennt er gert meira með sautjánda júní heldur en fyrsta des.
Mér er það ljúft að segja að í áratugi studdi ég Sjálfstæðisflokkinn, en svo kom Bjarni Ben sem er flækjufótur og handónýtur foringi og þá ríkir áttleysi, stefnuleysi og í viðbót kærulaust, ískalt rænuleysi, fyrir gildum grundvallar stefnuskrár Sjálfstæðisflokksins.
Hver sem vill getur náttúrulega lesið sögu Björns Bjarnasonar laugardaginn fyrsta des 2018.
Fullveldisdegi fagnað.
En er ekki eitthvað sérstakt við þetta ágrip af sjálfstæðissögu okkar og hvergi minnst á heiður neins nema kannski Bjarna frá Vogi. Þar komu ýmsir ágætismenn við sögu og mögulega ekki allir sammála eins og stundum er. Svo lítur út núna, sem Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins ætli með leyndar hyggju að lauma okkur þegjandi og hljóðalaust inní í þetta ókjörna ESB stjórnræði á agúrkusneiðum plús stórum orkupökkum.
Það er þá meiri andskotans Kvislinga áhöfnin sem skipar þingflokk gamla Sjálfstæðisflokksins okkar, ja það er þá ekki mikið þó hann rotni atkvæða laus í saltlausri tunnunni.
Athugasemdir
Sæll veri goðinn og enn nennir hann að lúskrast í honum Birni. En það er gott mál og það þarf að sótthreinsa allt Alþingi eins og ástandið er í dag,bara grútur með fermingarstelpum fljótandi ofaná!! ekki gott lagsi, ekki gott.
Eyjólfur Jónsson, 2.12.2018 kl. 20:30
Þakka þér Eyjólfur og vænti þess að þið hjónin hafið það gott. Nú snjóar á Norðfirði og það er fallegt.
Hrólfur Þ Hraundal, 3.12.2018 kl. 01:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.