4.7.2016 | 13:14
Páll nokkur Rósinkrans kvartar hér á síðum
undan efndum Guðna þess er hann valdi en ég hafnaði.
Guðni er trúlega ágætis maður, en af stuttum kynnum, þá má sjá að hann er vingull og þar með ekki hentugur til forustu fyrir staðfasta Íslendinga. Þetta er það sem mörgum sást yfir og þar með téðum Páli Rósinkrans sem hefur sett á loklok og læs við öllum mínum athugasendum á sinni síðu.
Páll þessi Rósinkrans fjallar með öllu réttu um þjón Kirkjunnar sem tók upp hanskann fyrir þjófa sannleikans í Lauganeskirkju. Það er stórmerkilegt hvernig konur hafa þróað með sér hæfileika til að hugsa með hjartanu, en okkur karlmönnum hefur blessunarleg aldrei tekist að þróa þá aðferð.
Athugasemdir
Það hefur ekki reynst vel að stjórna með tilfinningasemi, raunveruleiki og staðreyndir hentast betur.
Kveðja frá Houston
Jóhann Kristinsson, 4.7.2016 kl. 15:28
Sæll Hrólfur Vélfræðingur: sem og aðrir gestir, þínir !
Ég læt - lausar og bundnar, orðræður ykkar Jóhanns Flugvirkjameistara að þessu sinni, en vil leirétta þig lítilsháttar, Hrólfur.
Síðuhafinn: sem þú ert að vísa hér til, heitir Sveinn Rosenkrantz Pálsson, en ekki Páll, svo fram komi, ágæti Vélfræðingur.
Með beztu kveðjum - til Eyrarsveitar / sem víðar um grundir, af Suðurlandi /
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 4.7.2016 kl. 23:46
Þakka þér ábendinguna fornvinur Óskar Helgi Helgason og bið ég Svein Rósinkrans Pálsson, sem og þig Óskar Helgi innilegrar afsökunar á mistökum mínum.
Hrólfur Þ Hraundal, 5.7.2016 kl. 06:41
Þetta er góður pistill hjá þér Hrólfur og þarfur. Ég er ansi smeykur um að þetta verði ekki síðustu mistök Guðna en við getum huggað okkur við að það verður kosið aftur eftir fjögur á og þá á ég von á að fólk verði búið að átta sig á þeim mistökum sem voru gerð í þessum kosningum.
Jóhann Elíasson, 6.7.2016 kl. 08:42
Sælir strákar og Jóhann! það verður búið að ganga á ýmsu áður en við fáum Forseta aftur etir 4 ár, það er alveg víst.
Eyjólfur Jónsson, 9.7.2016 kl. 16:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.