Nú eru sjómenn að verða hallærislegir.

Stétt sem kallar sig sjómenn og telja sig yfir aðra hafna og hafi þar með eignarrétt á öllum fiskum  við Ísland, nenna nú um mundir ekki að veiða fiska og þar með eru engir fiskar veiddir. 

Fiskum, fiskvinnslufólki  og mörkuðum er því haldið í gíslingu af þessum hetjum hafsins sem bera enga virðingu fyrir neinu nema sjálfum sér og skilja ekkert í samvöxnum hagsmunum.

Ætli sjómenn að rústa árangri kynslóða við að finna og viðhalda mörkuðum fyrir fisk sem þeir lifa á sem og margir aðrir þá er ekkert annað að gera en að fá tildæmis Breta og Norðmenn til að veiða íslandsfisk þar til við höfum komið okkur upp tækjum og skárri manskap sem vill vinna þetta án þess hroka sem sjómenn eru að sína okkur núna.  


Einbreiðar brýr, holóttir og hlykkjóttir fjallvegir

 eru stór hættulegir fyrir túrista, það verður að laga þetta strax !!!   Svona glamrar vitra góðafólkið alla daga og skíthús þarf að setja upp alstaðar þar sem túrhestar reka augun í hross að naga gras. 

Það gengur auðvita ekki að láta vesalings hrossin naga gras og þess vega fá þau allt það sem íslenskar vegasjoppur hafa uppá að bjóða ásamt asískum töfralyfjum við náttúruleysi og mögulega stöku hasstuggu, svo það er ekki undarlegt þó hrossin verði skrítin, steingeldir folar  svo merarnar fá ekki neitt.  

Við kjánarnir veltum því fyrir okkur hvað það er sem vitra góða fólkið vill sýna þessum hjörðum sem ljóslega hafa lengst æfi sinnar ferðast um á tveimur jafnfljótum, reiðhjólum eins og Hjalli hjól og stökusinnum á asnakerrum.  Er það Ísland eins og það er, eða er það Ísland eins og vitra góðafólkið vill hafa það? 

Ég er þess fullviss að um Ísland var mun skemmtilegra að ferðast fyrir 40 – 50 árum, en smekkur allra er kannski ekki eins eftir því hvorn stofninn er verið að tala um, vitra góðafólkið sem kemur sér fyrir á Bessastöðum og í forsæti Alþingis, eða þá sem skilja það ekki.

 Við þessi sem skiljum þetta ekki þurfum að eiða tíma og peningum til að fá bílpróf og tekst ekki öllum.  En svo lítur út sem Asíumenn sem hingað koma þurfi ekki annað en próf á asnakerru til þess að fá heimildir til að fremja sín afglöp hér.  


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband