Þegar ég var ungur maður og ekkert að hugsa um lífeyrissjóði,

 þá komu menn að sunnan, lífeyrissjóða kynnar og sögðu okkur starfsmönnum Dráttarbrautarinnar Neskaupstað margt um lífeyrissjóði.

Þar með var til okkar ungu mananna beint að þar sem við værum svo ungir að þá værum við heppnir, því að þegar að því kæmi að við yrðum gamlir og fengjum rétt til launa þar, þá ætum við rétt á meðaltals launum okkar yfir ævina.

 En vegna þess að ég geri ekkert nema eiga fyrir því og greiði skuldir mínar svo sem talað hefur verið um,  þá hringdi ég 48ára í lífeyrissjóðinn sem ég borgaði í.og hafði gert lengi.  Kona varð fyrir svörum og ég spurði hver yrðu mín réttindi hjá sjóðnum þegar ég hætti að vinna 67.ára.  Hún spurði um kennitölu  og virtist svo vera að grauta í pappírum.  Svo kom hún og sagði mér að ég ætti rétt á svona láni  og svo svona láni og meira láni og svo gæti ég sótt um viðbótar lán ef vantaði, þar sem ég skuldaði ekkert.

 Ég reyndi að  koma konunni í skilning um að mig vantaði ekki lán, en langaði að vita hvað ég fengi í lífeyri ef ég neyddist til að hætta að vinna eftir 67.ára aldur.  Konan blaði í pappírum smá stund og spurði svo, hvað ert þú að spurja um þetta svona ungur maðurinn ?  Ég taldi að rétt væri að athuga hlutina í tíma,  það hnussaði í kerlingunni og samtalinu við þessa handónýtu kerlingu sem lifði á lífeyrissjóði var lokið.  

Á þessum tíma þá unnu allir ungir menn mikið til að byggja hús og gera fjölskyldu sinni gott líf.  En hvað, lífeyrissjóðir, nei, bara puff!!!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Hrólfur - sem og aðrir gestir, þínir !

Hrólfur !

Undanfarin liðlega 2 ár: hefi ég verið að kljást við Lífeyrissjóða Mafíuna (byrjaði að greiða í þessa hít 1972 / þá 14 ára gamall - og hætti því árið 2008) og mun herða frekar róðurinn gagnvart þessum  gerpum, upp úr komandi áramótum, verði ég ekki dauður áður:: hvar Sigurbjörn Sigurbjörnsson, svo kallaður forstjóri Söfnunarsjóðs lífeyrisrérttinda (skreytir sig með SL skammsöfuninni, þessi misserin) og hans lið, vilja mig svo sannarlega feigan, Helvízk.

Með beztu kveðjum sem oftar - af Suðurlandi / 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 15.12.2018 kl. 21:07

2 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Auðvit er það svo Óskar Helgason að fyrir lífeyrisjóði og þá sem á sem á þeim lifa, er hentugt að gamlir eigendur þeirra drepist sem snarast og mögulega þíðir „SL“ Stutt Líf.

Hrólfur Þ Hraundal, 16.12.2018 kl. 22:22

3 identicon

Sæll á ný - Hrólfur Vélfræðingur !

Nákvæmlega: á þann vegið er því háttað / eins og þú segir, réttilega.

Með sömu kveðjum - sem fyrri /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 17.12.2018 kl. 17:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband