Framkvæmdastjórn landssambands Sjálfstæðiskvenna er í vindinum

og grenjar af ergelsi vegna þess að kjósendur völdu vitlaust í svo nefndum Kraga, sniðugt hjá þeim þegar til þess er litið hvernig frammistaði kvenna hefur verið nú síðustu tvö kjörtímabil á Alþingi.

Þar ber fyrst að nefna Jóhönnu Sigurðardóttur sem vann bara að tveimur málum alt kjörtímabil sitt og vegna heimsku sinnar þá tókst henni ekki einu sinni að koma okkur á hausinn, hvað þá að losa okkur við auðlindir okkar og sjálfstæði.  Meirihluti kvenna á Alþingi studdi Jóhönnu í báðum þessum málum og sumar skælandi.

 Hvernig er hægt að ætlast til að fólk geti treyst svona hjörð,  sem bara gasprar en gerir ekkert að gagni.  Þess ber og að geta að innan núverandi ríkisstjórnar eru tveir ráðherrar af kvenkyni sem ekki hafa reynst mjög gagnlegir og annar gæti reynst hættulegur verið hún aftur í ríkisstjórn, en það eru og fleiri vandræða konur í stjórnarflokkunnum og væri vel að fyndu sér flokka við hæfi. 

Landsambandi Sjálfstæðiskvenna væri sæmast að láta það vera að niðurlægja Íslenskar konur meira en orðið er.  Það eru nefnilega konur sem tóku þátt í þessu forvali og ef konur í landsambandi Sjálfstæðiskvenna eru óánægðar með val þeirra þá eru þær sjálfar óhæfar til verka fyrir sjálfstæðisflokkinn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það mætti halda að það ætti að kjósa konur bara af því að þær eru konur....  Ef við tökum úrslitin í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, held ég að konur ættu kannski að lýta í eigin barm.  Ragnhildur Elín hefur setið undir ámæli fyrir að hafa verið hálf verklaus þetta kjörtímabil og málflutningur Unnar Bráar er ekki alveg það sem hinum almenna Sjálfstæðismanni hugnast og ekki er hægt að segja að hún hafi verið nein hamhleypa til verka.  Í Suðvesturkjördæmi hefur Elín Hirst verið mjög svipuð og Unnur Brá og ekki er hægt að segja að mikið hafi kveðið að henni eða hennar málflutningi.  Eru kjósendur ekki að senda skilaboð með þessum úrslitum?  Nú kalla konur eftir aðgerðum vegna þessa.  Þetta er lýðræðisleg niðurstaða og lýðræðið hefur talað, það væri aðför að lýðræðinu að ætla sér að fara að "krukka" eitthvað í úrslitin eftir á.............

Jóhann Elíasson, 11.9.2016 kl. 18:49

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þessi setning hressir mig virkilega við fyrir kvöldið:

"Þar ber fyrst að nefna Jóhönnu Sigurðardóttur sem vann bara að tveimur málum allt kjörtímabil sitt og vegna heimsku sinnar þá tókst henni ekki einu sinni að koma okkur á hausinn, hvað þá að losa okkur við auðlindir okkar og sjálfstæði."

Makalaus "árangur", loksins þegar hennar tími var kominn!

Takk, Hrólfur. laughing

Jón Valur Jensson, 11.9.2016 kl. 20:06

3 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Jú auðvita eru konur að senda skilaboð Jóhann eins og allir gera sem kjósa. Takk fyrir Jóhann. 

Hrólfur Þ Hraundal, 12.9.2016 kl. 00:37

4 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Sumum finnst orð mín hrottaleg gagnvart konum en svona er þetta bara og við því get ég lítið gert.  En konur á þingi hafa verið einkar duglegar í málþófi.  Þakka þér fyrir jón Valur. 

Hrólfur Þ Hraundal, 12.9.2016 kl. 00:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband