Það er ekki öllum gefin greind til að viðhalda góðum árangri:

 Árangri sem einkum lág í því að öðlast viðurkenningu og vera tekin sem fullgildur í samfélagi okkar Íslendinga sem var ekkert sjálfgefið.  Í mörgu tilliti þá hefur samkynhneigðum tekist betur hér en viða annarstaðar og eiga þeir þann árangur einkum að þakka víðsýni en þó einkum umburðarlyndi Íslendinga, en umburðarlyndi má ofbjóða.

Í öllum klúbbum eru til kjánar og er það svo sem allt í lagi og getur ástundum verið skemmtilegt að fylgjast með slíkum kjánaskap, enda ekki bannað að hlægja að vitleysisgangi klaufabárða.

En svo versnar og versnar og versnar þegar kjánarnir ofmetast í kjánaskap sínum og byrja að eyðileggja fyrir félögum sínum í klúbbnum margra áratuga árangur og þessi kjánaskapur kemur til með að lenda harkalega í hnakkann á hinsegin fólki öllu, ekki bara kjánunum. 

Þetta er alveg eins og með múslímanna, þeir gjalda allir fyrir öfga félagasinna og bókarinnar, stjórnarskrár múslíma.

Ég er þess nokkuð viss að þetta mál gegn Jóni Val kemur ekki til með að verða samkynhneigðum til hagsbóta á hvorn veg sem það fer, þar sem allar þeirra hagsbætur byggja á okkar velvild, okkar umburðarlyndi, þar sem þeir voru af náttúrulegum ástæðum minnihluta hópur, en voru að samlagst og losna undan því að vera litnir hornauga, en greindarskortu og öfgar valda því núna að þeir velja að verða aftur minnihluta hópur ef svo sér sem horfir.    

    


Bloggfærslur 30. nóvember 2016

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband